Óteljandi möguleikar
Barcelona er full af lífi á kvöldin og sumsstaðar langt fram á nótt. Þó að mestu frá fimmtudagskvöldi til sunnudagskvölds. Mánudagskvöld er Barcelona dauf ef ekki dauð borg að þessu leyti. Lifnar aðeins við á þriðjudögum og miðvikudögum. Rís að fullu upp eftir það. En fólk fer seint út. Veitingastaðirnir, barirnir, krárnar, knæpurnar, smætlustaðirnir, með gómsætu tapasi af allri gerð, eru nánast óteljandi og í öllum verð- og gæðaflokkum, hvort sem það er í Gotneska hverfinu, Born, Cituat Vella, la Barceloneta, Gràcia, Raval eða á Monjüic.