fbpx Calpe | Vita

Fallegur spænskur bær við Miðjarðarhafsströndina.

Calpe á sér merka sögu. Bronsaldarminjar allt frá tímum Rómverja og fyrr eru líka merki um hernað og róstur við herskáar múslimskar þjóðir handan Miðjarðarhafsins. Stórkostlegar klettamyndanir einkenna staðhætti og landslag. Veðurfar er jafnan afar gott enda loftslagið milt Miðjarðarhafsloftslag. 

Calpe er í dag glæsilegur og lifandi ferðamannabær á besta mælikvarða með fjölbreytilega menningu og mannlíf og góðar samgöngur í allar áttir.  Við hafið eru fallegar, hvítar strendur og sjórinn er dásamlegur. Hér er því fjölmargt í boði sem tengist hafinu, sundi, bátum, köfun og jafnvel fiskveiðum. Hótelin eru glæsileg með fjölbreytilegum veitingum og allskonar veitingahúsum, jafnt fyrir matarsérvitringa sem hinn venjulega ferðamann. Fjöldi safna  er í borginni og afþreyingarmöguleikar því margir fyrir ferðamanninn og hér er gott að dvelja.

Skemmtigarðar og vatnsrennibrautagarðar – Þeir bestu á Spáni!

Renndu þér í sólinni eða skelltu þér í skemmtigarð með alla fjölskylduna, það slær í gegn!

Terra Mitica-skemmtigarðurinn;– Fjör fyrir alla fjölskylduna
Stærsti og skemmtilegasti garður í Evrópu! Stórkostlegir rússíbanar af öllum stærðum og gerðum, sýningar á hverju strái, sjóræningjar, skylmingaþrælar og ýmislegt fleira, meðal annars stórfenglegar leiksýningar á kvöldin. Frábær skemmtun fyrir unga sem aldna.
Vegalengd er ca 25-35 km frá flestum gististöðum á Calpe.

Aqualandia;– Vatnsrennibrautagarður í heimsklassa
Big Bang eða Kamikaze? Báðar rennibrautirnar? Ekkert mál, þær eru hver annarri betri í þessum frábæra garði. Stórskemmtilegt lón er í garðinum þar sem finna má svæði fyrir börn, og alla hina líka! Slettu úr klaufunum í Aqualandia, þaðan sem allir fara heim með bros á vör.
Vegalengd er ca 25-35 km frá flestum gististöðum á Calpe.

Mundomar;– Vatnaveröld og framandi dýralíf
Heillandi ævintýraland með fallegu sjávarlífi og framandi fuglalífi. Sjáðu dansandi höfrunga, sæljónin leika sér, páfagaukasýninguna og farðu með börnin í barnalandið. Og ekki gleyma hinu risastóra fiskabúri þar sem litadýrðin og fjölbreytnin er æðisleg. Frábær garður.
Vegalengd er ca 25-35 km frá flestum gististöðum á Calpe.

Terra Natura;– Glænýr náttúrulífsgarður
Engar sýnilegar hindranir á milli þín og dýranna. Sjáðu undur náttúrunnar með eigin augum á stórfenglegum sýningum og með snilldarlega útsettum atriðum. Í garðinum færðu tvo fyrir einn, þar er líka Aqua-Natura garðurinn, frábær vatnsrennibrautagarður þar sem þú getur skemmt þér og slappað af áður en þú snýrð aftur heim í sólskinsskapi.
Vegalengd er ca 25-35 km frá flestum gististöðum á Calpe.

 

Myndir: 
Mynd: 
web-calpe_vita-ferdaskriftofa-8.jpg

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun