Sa Coma
Sannkölluð fjölskylduparadís. Lítill staður og fallegur. Falleg strönd og skemmtilegt mannlíf sérstaklega við göngugötuna sem liggur meðfram ströndinni. Smærri verslanir eru í Sa Coma, en til að fara í stærri verslanir er stutt að fara yfir í Cala Millor. Stórar og góðar íbúðir eru á gististaðnum Iris sem hundruð Íslendinga þekkja frá fyrri tíð. Einnig ódýrt hótel með öllu inniföldu og glæsihótelið Royal Mediterraneo sem er eingöngu fyrir fullorðna.
Cala Millor
Einn af vinsælustu stöðunum á austurströnd Mallorca og liggur norðan við Sa Coma. Bærinn er stærri en Sa Coma og þar er meiri bæjarbragur. Fínar göngugötur með alls kyns sérverslunum og skemmtilegu næturlífi. Gríðarlega falleg strönd þar sem hægt er að vaða langt út í sjó. Frábær gisting á íbúðarhótelinu Bahia Grande sem Íslendingar þekkja.
Vegalengd milli Palma og Cala Millor er um 70 km og tekur aksturinn um 60 mín. Á leiðinni er ekið um fallegar sveitir Mallorca þar sem óviðjafnanleg náttúrufegurðin lætur engan ósnortin.
Hægt er að taka leigubíl en einnig eru reglulegar strætóferðir í boði.