Birna Guðmundsdóttir
Fararstjóri
Birna er mikil áhugamanneskja um heilsu, hreyfingu og útivist.
Hún hefur verið viðloðandi íþróttir eins og ballet sund og fimleika frá barnæsku. Eftir útskrift frá Íþróttakennaraskóla Íslands hefur hún starfað við almenningsíþróttir og grunnskólakennslu.
Í 25 ár hefur hún starfrækt Líkamsrækt B&Ó í íþróttmiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ í samstarfi við Ólaf Á. Gíslason íþróttakennara. Í þessari líkamsrækt skipar félagsstarf stóran sess með ýmsum skemmtunum og ferðum. Birna kennir einnig vatnsleikfimi, skriðsund, meðgöngusund og ungbarnasund í Garðabæ.
Birna hefur ávallt jákvæðni og vellíðan að leiðarljósi í öllu þvi sem hún tekur sér fyrir hendur.