Jóhanna Björnsdóttir
Fararstjóri
Jóhanna Björnsdóttir er fædd 7.des 1957 í Reykjavík og lauk námi frá sjúkraliðaskóla Íslands 1977.
Hún vann sem sjúkraliði á Íslandi og eftir það í tíu ár í Lundi í Svíþjóð, þar sem hún kynntist eiginmanni sínum sem er frá grísku eyjunni Krít. Þau fluttu til Krítar árið 1988 og þar hefur Jóhanna verið búsett síðan ásamt sonum þeirra.
Jóhanna er jafnvíg á grísku og íslensku, þekkir eyjuna mjög vel, bæði söguna og hvernig hið daglega líf Krítverja gengur fyrir sig. Jóhanna vann sem fararstjóri fyrir íslenskar ferðaskrifstofur, bæði í Chania og Rethymon á árunum 2000 til 2008. Hún var fjögur síðustu árin yfirfarstjóri og hefur því góða reynslu af fararstjórn.