Ólafur Loftsson
Fararstjóri
Verður á Morgado 13. apríl - 3. maí og á Lagos 3. - 13. maí
Ólafur Björn Loftsson er fæddur árið 1987. Hann byrjaði í golfi 12 ára gamall og hefur síðan þá stundað íþróttina af miklum kappi.
Ólafur er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og hefur leikið í fjölmörgum Evrópu- og Heimsmeistaramótum fyrir Íslands hönd. Hann stundaði nám við University of North Carolina at Charlotte í Bandaríkjunum og útskrifaðist með B.S. gráðu í fjármálum.
Samhliða náminu spilaði hann fyrir golflið skólans með góðum árangri. Ólafur var á tímabili á meðal 100 bestu áhugakylfinga heims. Hann hefur tvisvar verið valinn kylfingur ársins og er eini íslenski kylfingurinn til að leika í móti á PGA mótaröðinni.
Ólafur gerðist atvinnukylfingur er hann útskrifaðist úr háskólanum og leikur hann nú á skandinavísku atvinnumannamótaröðinni í golfi. Hann stefnir að því að vinna sér inn þátttökurétt á evrópsku mótaröðinni og spila á meðal bestu kylfinga heims.