fbpx Celebrity Eclipse | Vita

Celebrity Eclipse
5 stars

Vefsíða hótels

Celebrity Eclipse  er í svokölluðum „Solstice” verðflokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. 

Celebrity Eclipse fór í sína jómfrúarferð í apríl 2010 og var endurnýjað árið 2014. Skipið er 122.000 rúm lestir, um 315 metrar á lengd og með rými fyrir  2850 farþega.
Skipið er 12 hæðir og á efsta þilfari er Sveitaklúbburinn The Lawn Club með vel snyrtri grasflöt, sólarlagsbarnum og keilubrautum.

Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut, setustofum, veitingastað og bar, allt með gríðarmiklu útsýni til allra átta. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Þar eru nuddpottar, gufa, sauna og endalausir möguleikar á ýmsum  dekur- og heilsubætandi meðferðum. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur, kaffihús, ísbúðir o.fl.  Á Promenade þilfarinu eru  litlar verslanir, vínbarir og spilavíti.

Kvöldverður eru borin fram í aðal veitingasal skipsins, sem er á tveimur hæðum. Fleiri veitingastaðir eru um borð eins og Murano sem er með úrval alþjóðlegra rétta á matseðlinum og Tuscan Grille , sem býður ítalska rétti og lúxus steikur.  Silk Harvest  er með asískt eldhús. G

Barir eru um allt skip og þegar kvöldar taka við glæsilegar sýningar og uppákomur í leikhúsinu, sem er á þremur hæðum.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun