fbpx Celebrity Solstice | Vita

Celebrity Solstice
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Celebrity Solstice var smíðað 2008 en endurnýjað árið 2012. Skipið er 12 hæðir, 122.000 rúm lestir, um 315 metrar á lengd og með rými fyrir 2886 farþega.
Á efsta þilfari er Sveitaklúbburinn The Lawn Club með vel snyrtri grasflöt, sólarlagsbarnum og keilubrautum.

Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut, setustofum, veitingastað og bar, allt með miklu útsýni. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Þar eru nuddpottar, gufa, sauna og endalausir möguleikar á ýmsum dekur- og heilsubætandi meðferðum. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur, kaffihús, ísbúðir o.fl.  Á Promenade þilfarinu eru litlar verslanir, vínbarir og spilavíti.

Kvöldverður eru borin fram í aðal veitingasal skipsins, sem er á tveimur hæðum. Fleiri veitingastaðir eru um borð eins og Murano sem er með úrval alþjóðlegra rétta á matseðlinum og Tuscan Grille , sem býður ítalska rétti og lúxus steikur.  Silk Harvest er með asískt eldhús. Bóka þarf borð og greiða þjónustugjald á sérrétta veitingastöðum skipsins, gjaldið er frá 20 – 50 usd á mann, fer eftir stöðum.

Barir og seturstofur eru um allt skip og þegar kvölda eru glæsilegar sýningar og uppákomur í leikhúsinu, sem er á þremur hæðum.

Vínspesíallistar frá vínræktarhéruðunum í Napa Valley eru á barnum Cellar Masters og kenna ykkur  að þekkja göfug vín og velja það besta um borð.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Fjölbreytt úrval á skipi og í landi.

Aðstaða

  • Nettenging: Gegn gjaldi
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Minibar
  • Ísskápur
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun