fbpx Colon Guanahani | Vita

Colon Guanahani, Costa Adeje
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel, byggt í fallegum spænskum nýlendustíl, þar sem boðið er upp á allt það helsta í þjónustu og góðum mat. Frábærlega staðsett á einkasvæði á Costa Adeje, aðeins spölkorn frá Playa Fanabe-ströndinni. Hótelið er aðeins fyrir 16 ára og eldri.

Hotel Colon Guanahaní býður upp á þægilega gistingu og sólbaðsaðstöðu af bestu gerð. Allt sem þarf til að láta líða úr sér í fallegu og rólegu umhverfi. Sundlaugagarðurinn er frekar lítill en vel búinn og skemmtilegur með tveimur sundlaugum, upphitaðri laug og saltvatnslaug, sem umkringdar eru pálmatrjám og hitabeltisplöntum. Einnig er sundlaug á þaki hótelsins með fallegu útsýni. Á hótelinu eru tveir veitingastaðir: hlaðborðsveitingastaðurinn Colón sem býður upp á morgunverð og kvöldverðarhlaðborð og hinn notalegi La Pérgola við sundlaugarbakkann þar sem hægt er að snæða létta rétti og boðið er upp á hádegisverðarmatseðil. Einnig eru á hótelinu tveir barir, við sundlaugina og í aðalbyggingu.

Herbergin eru ekki af verri endanum, hreinleg, litrík og fallega innréttuð með einkasvölum og flísalögðum gólfum. Öll helstu þægindi eru til staðar, t.d. loftkæling, minibar, þráðlaust internet, hljóðeinangrun og snyrtivörur á baði.

Heilsulind hótelsins býður upp á alls kyns heilsu- og fegurðarmeðferðir og er tilvalinn staður til að hreinsa hugann og hlúa að sjálfum sér. Einnig er á staðnum vel búin líkamsræktaraðstaða. Hægt er að bóka ýmiskonar ferðir og afþreyingu í næsta nágrenni á hótelinu, t.d. hellaskoðun, kajakferðir og ferðir í Teide-þjóðgarðinn. Hótelgestir fá jafnframt afslátt á alla helstu golfvelli á Costa Adeje og hægt er að bóka ferðir í golf. Stutt er á flugvöllinn og í alla helstu þjónustu.

Aðstaða

  • Sundlaugabar
  • Lyfta
  • Líkamsrækt
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Sundlaug
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Te- eða kaffiaðstaða
  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Þráðlaust net
  • Baðsloppar

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun