Dolores, Enska ströndin
Vefsíða hótels

Einfalt og snyrtilegt nýuppgert hótel á einstökum stað á Ensku ströndinni, aðeins ætlað fullorðnum. Hótelið er í rólegri botngötu og aðeins spölkorn frá Ensku ströndinni, veitingastöðum og verslunum, m.a. Yumbo-verslunarmiðstöðinni.
Í hótelinu eru 64 stúdíóíbúðir í þremur byggingum. Stúdíóin eru nýlega uppgerð, þrifaleg og innréttuð á einfaldan hátt. Flísar eru á gólfum. Í svefnherbergi eru tvö einstaklingsrúm og svefnsófi í stofunni. Allar vistarverur eru búnar 32 tommu flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum. Í eldhúskrók er allt það nauðsynlegasta til eldamennsku, hellur, örbylgjuofn, kaffivél, brauðrist og ísskápur, auk tilheyrandi áhalda. Öryggishólf fæst gegn gjaldi. Þráðlaust net er í móttökunni en gegn gjaldi í íbúðum. Á baðherbergi eru handklæði og hárþurrka. Við allar vistarverur er verönd eða svalir, búnar húsgögnum. Úr íbúðum á jarðhæð er gengið beint út að sundlaug. Við allar íbúðir eru einkasvalir eða verönd.
Gestir hafa úr þremur sundlaugum að velja, því að ein er við hverja byggingu, og enginn skortur er á sólstólum. Sólbaðsaðstaða er einnig á tveimur þakveröndum, þar eru sólbekkir og sturtur og ekki gerðar háar kröfur um klæðnað, því að þeim sem það kjósa er leyfilegt að láta Evu- og Adamsklæðin njóta sín. Útsýnið er fallegt, yfir sandöldurnar við ströndina og út á Atlantshafið.
Gestamóttakan er opin frá 8:00 - 20:00 og þar er bíla- og hjólaleiga, þvottaþjónusta og veitt aðstoð við miðakaup og ferðaskipulag.
Dolores Apartments er tilvalið fyrir þá sem kjósa einfalda og snyrtilega gistingu, aðeins ætlaða fullorðnum. Hótelið er við rólega botngötu en þó í aðeins örfárra mínútna göngufjarlægð frá strandgötunni, verslunum, veitingastöðum og Yumbo-, Sandía- og Cita-verslunarmiðstöðvunum. Strætó stoppar rétt við hótelið. Það tekur fimm mínútur að aka að Maspalomas-golfvellinum. Rétt er að benda á að lyfta er einungis í einni byggingu af þremur og nokkuð um tröppur á milli sundlauga í hótelgarðinum. Einnig liggja tröppur niður á ströndina.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 35 km
- Strönd: Göngufæri við Ensku ströndina
- Veitingastaðir: Allt um kring
Aðstaða
- Sundlaug
- Gestamóttaka
- Íbúðir
- Nettenging: Aðgangur getur verið hægur
Vistarverur
- Sjónvarp
- Kaffivél
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Ísskápur: Lítill kælir
Fæði
- Án fæðis