fbpx Gististaður | Vita

Hipocampos íbúðir, Calpe
2 stars

Vefsíða hótels

Hipocampos íbúðir AR hótela eru vel búnar og rúmgóðar íbúðir á frábærum stað við ströndina í Calpe.

Í öllum íbúðum er fullbúið eldhús með eldavél, bakarofni og stórum ísskáp. Íbúðirnar eru jafnframt með loftkælingu, sjónvarp, þráðlausri nettengingu, þvottavél og rúmgóðum svölum með húsgögnum og tveimur sólbekkjum. 

Í garðinum eru tvær sundlaugar og ein barnalaug. Einnig er upphituð innilaug opin allt árið frá kl. 9:30-19:00 sem er 1m djúp, þar er jafnframt sturta, wc og skiptiherbergi. 

Töluvert af börum, kaffi- og veitingahúsum í nágrenninu og 200 metrar er í matvöruverslun.

Lyklar að íbúðunum eru sóttir í byggingu sem heitir Turmalina u.þ.b. 500-700 metrum frá íbúðunum, þar er opið allan sólarhringinn. Fararstjóri fylgir farþegum að ná í lykla sem hafa bókað akstur til og frá hóteli fyrir brottför.

Hægt er að fá rúmgóðar og vel búnar íbúðir með hliðar sjávarsýn/"side sea view"

Þrif eru ekki innifalin á meðan dvöl stendur, en hægt er að greiða fyrir þrif:
Íbúð með einu svefnherbergi, 26 EUR skiptið.
íbúð með tveimur svefnherbergjum, 38 EUR skiptið.
Íbúð með þremur svefnherbergjum, 50 EUR skiptið.

Greiða þarf €150 í tryggingu sem er endurgreidd við brottför.

Hipocampos er góður kostur fyrir fjölskyldur sem vilja geta eldað, þvegið og verið útaf fyrir sig.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 65 km
  • Frá miðbæ: 2,5 km
  • Frá strönd: Við ströndina
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Nettenging: Þráðlaus nettenging á sameiginlegum svæðum og í íbúðum án endurgjalds
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Gestamóttaka

Vistarverur

  • Íbúðir: með einu, tveimur og þremur svefnherbergjum
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Sjónvarp

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun