KVAN - Melia Benidorm
Vefsíða hótels

Endurmenntunarferð til Benidorm 26.-30.maí
Velkomin(n) á skráningarsíðu VITA og KVAN þar sem að þú skráir þig í endurmenntunarferð til Benidorm.
Í ferðinni náum við að sameina endurmenntun, eflingu liðsheildar og njótum samvistar hvors annars á Benidorm.
Innifalið í ferðinni
Flug til og frá Alicante/Benidorm.
Akstur til og frá flugvelli á Alicante/Benidorm
Endurmenntun og námskeið hjá KVAN
Fararstjórn
Hótelgisting
Verð
169.900 krónur fyrir einstakling miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
189.900 rónur fyrir einstakling í einstaklingsherbergi
Staðfestingargjald
40.000 krónur sem er óendurkræft.
Skráning í herbergi
Vinsamlega skráðu bara þig sem einstakling og svo raðar ferðanefndin ykkar ykkur saman í herbergi áður en farið er í ferð.
Nánari ferðalýsing og námskeiðslýsing verður svo send á þig áður en farið verður í ferðina.
Hlökkum til að fara í gegnum þetta ferðalag með ykkur.
KVAN
Melia Benidorm er fínt og flott hótel á góðum stað. Um 10 min gangur að Levante-ströndinni. Eitt besta hótelið á Benidorm með glæsileg sameiginleg salarkynni, frábæran sundlaugargarð og vel útbúna heilsulind.
Á hótelinu eru 526 björt og rúmgóð herbergi. Herbergin eru með svalir sem snúa ýmist út að hafi eða inn í garðinn. Hótelið er þó ekki alveg við ströndina. Hægt er að fá samliggjandi herbergi með ,,superior" herbergjum.
Athugið að VITA mælir með að bókað sé Superior herbergi fyrir 3 aðila ásamt ungabarni þar sem standard herbergin rúma ekki bæði auka rúm og barnarúm.
Í öllum herbergjum er gervihnattasjónvarp, sími, internet, útvarp, smábar, loftkæling, hárþurrka, marmaragólf, skrifborð, sófi og öryggishólf sem rúmar fartölvu (gegn gjaldi).
Á baðherbergjum er baðkar með sturtuhaus.
Nokkur veitingahús eru á hótelinu;
El Curt er með hlaðborð
El Moralet og á sundlaugarbarnum Chiringuito L'Illa er hægt að fá snarl og léttari rétti (ekki innifalið í verði fyrir hálft fæði).
Á bar hótelsins er líf og fjör.
Sundlaugargarðurinn er stór og glæsilegur, þar eru tvær stórar sundlaugar, barnalaug og sérstakt svæði fyrir börnin. Einnig er innilaug og nuddpottur. Heilsuræktin er glæsileg og þar er í boði fjölbreytt úrval snyrti- og nuddmeðferða auk þess sem hægt er að fá nudd á herbergjum.
Við sundlaugina er hægt að leigja handklæði. Greiða þarf 10 Evru tryggingagjald fyrsta daginn, sem fæst endurgreitt ef hótelgestir skila handklæðum sínum.
Gott hótel á fínum stað, rétt hjá Levante ströndinni. Nýlega voru allar lyftur endurnýjaðar. Fín sameiginlega salarkynni með tveimur byggingum, Poniente og Levante.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 56 km - 50 mín
- Miðbær: 2,5 km í gamla bæinn
- Strönd: 900 metrar að Levante ströndinni
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging: Frítt Wi-fi, það þarf að biðja um aðgangsorð í móttöku
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Minibar
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi, 1,50 evra á dag 10 evru trygging
Fæði
- Hálft fæði