fbpx Mariner of the Seas | Vita

Mariner of the Seas
5 stars

Vefsíða hótels

Mariner of the Seas   

Glæsilegt farþegaskip í flota Royal Caribbean Cruise Line. það er 138 þúsund lestir og rúmar alls 3.114 gesti auk áhafnar.  Um borð er ýmis afþreying, lasertag, rennibrautir, aðstaða til að æfa sjóbretti og margt fleira.  Að sjálfsögðu eru einnig verslanir, spilavíti og heilsulind með snyrtistofum, tækjasal og alls kyns meðferðum. Sundlaugar, nuddpottar og sólarþilfar með sólbekkjum. Fjöldinn allur af börum, hver með sitt þema, jafnt innan dyra sem utan. Einnig veitingastaðir, leikhús og setustofur.

Klefar eru  ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og borði, sjónvarpi ( flatskjá)  hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu  og snyrtivörum.  Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir  og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og gjarnan  lifandi tónlist.  Heilsulindin býður gegn gjaldi ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir. 

Aðal veitingasalurinn er á þremur hæðum með svölum og glæsilegum stiga á milli hæða. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína. Aðrir veitingastaðir eru Johnny Rocket  sem er ekta amerískur „Diner „ með úrvals hamborgurum, frönskum, laukahringjum og öðru góðgæti.  Sérrétta veitingastaðurinn Giovanni's Table og Chops Grissl sem er steikhús, á þessum veitingahúsum þarf að panta borð og greiða aukagjald. Windjammer er sjálfsafgreiðslu veitingastaður og afar vinsæll fyrir morgun- og hádegisverð.  Þar má fá bæði salöt, létta rétti, kjöt, fisk og pasta og að sjálfsögðu er nóg af gómsætum eftirréttum. Um allt skip eru 17 veitingastaðir, barir og setustofur. 

Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll.  Hægt er að fá eitthvað að borða og drekka  nánast allan sólarhringinn. Allan daginn eru veitingastaðirnir opnir og hefst með  morgunverði, hádegisverði, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverður . Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.

Eftir kvöldverðinn, sem er tvískiptur ganga gestir í leikhúsið og njóta þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur.  Fátt jafnast á við litríkar sýningar snillinganna sem þeysa um skautasvellið við dynjandi tónlist.

Fjarlægðir

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Herbergi: Klefar með með og án svala í verðflokki H og D2

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir: Í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun