Park Hotel Sport, Paganella
Vefsíða hótels

Gott og vel staðsett 4ra stjörnu hótel í hjarta bæjarins. Aðeins eru 200 metrar í skíðakláfinn í miðbænum og stuttí alla helstu þjónustu eins og veitingastaði og verslanir.
Á hótelinu er veitingastaður, sjónvarpsherbergi, bar, lestrarstofa, leikherbergi fyrir börn, sjónvarpsherbergi, tvær lyftur og upphituð skíðageymsla.
Veitingasalurinn er innréttaður í notalegum Alpastíl og mikið lagt upp úr góðum mat og ljúffengum vínum. Heilsulindin er einstaklega falleg með sundlaug, sauna, tyrknesku gufubaði og fleiri tegundum af böðum og sturtum. Auk þess er hægt að komast í ljósabekk og nudd eftir pöntunum, sem er greitt sérstaklega fyrir.
Öll herbergi hótelsins eru búin helstu þægindum s.s. svölum, síma, fríu þráðlausu interneti, öryggishólfi, sjónvarpi, hárþurrku og minibar.
Herbergin rúma 2-3 og einnig er hægt að fá herbergi fyrir 4.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 130 km
- Skíðalyfta: 200 m
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Veitingastaður
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
- Sundlaug: Innisundlaug
Vistarverur
- Hárþurrka
- Verönd/svalir
- Minibar
- Sjónvarp
Fæði
- Hálft fæði