fbpx Suitopia. Fallegt hótel. Góður staður. Nálægt strönd í Calpe

Estimar Calpe Suitopia 3 & Three, Calpe
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Estimar Calpe Suitopia 3 & Three, Calpe sem áður hét Suitopía Sol y mar er íbúðarhótel á frábærum stað við ströndina í miðbæ Calpe. Mikið er lagt upp úr fallegri umgjörð. Hótelið er fjölskylduvænt með úrval af afþreyingu fyrir börnin. 

Vistarverur skiptast í tveggja manna herbergi og svo 75 fermetra svítur sem rúma allt að fjóra. Innréttingar eru stílhreinar, í hvítum litum en einstaka veggir eru klæddir með ljósum við og áklæði er í mildum litum. Flísar eru á gólfum. LED-ljós eru stillanleg og því auðvelt að skapa óskastemninguna með réttri lýsingu. Öll helstu þægindi eru til staðar eins og stillanleg loftkæling og upphitun, sjónvarp, sími, öryggishólf og smábar. Á baðherbergjum er hárþurrka, baðvörur og ýmist baðkar eða sturta. Í svítunum er einnig sjónvarp bæði í svefnherbergi og stofu.
Sumar íbúðir eru með sjávar- eða borgarútsýni. Einnig eru einstaka íbúðir með eldhúskrók.
Ókeypis þráðlaus nettenging er á öllu hótelinu.

Veitingastaðurinn býður upp á úrval rétta af hlaðborði þar sem ávallt er lögð áhersla á ferskt hráefni og hægt er að fylgjast með kokkunum að störfum. Á setustofubarnum fást samlokur, snarl og drykki.
Á efstu hæðinni, þeirri þrítugustu, er Sky Lounge barinn með úrval kokteila og ómótstæðilegu útsýni yfir Ifach-klett og út á haf. 

Heilsulind er í hótelinu með líkamsræktaraðstöðu, heitum pottum og nudd- og líkamsmeðferðum.

Í hótelgarðinum eru sundlaugar fyrir börn og fullorðna, samtals 1.000 fermetrar. Sólbaðsaðstaða er til fyrirmyndar með sólbekkjum og sólhlífum og alltaf er hægt að fá sér snarl og svalandi drykki á sundlaugarbarnum. 

Mikið er lagt upp úr að huga að þörfum yngri fjölskyldumeðlima. Allar svítur eru með barnalæsingu á hurðum, gluggum og innstungum. Krakkaklúbbur er starfræktur og eru leiksvæði og afþreying miðuð við mismunandi aldurshópa. Tvær laugar eru fyrir börnin, busllaug og rennibrautalaug. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er kjörbúð og þvottahús með þvottavélum, þurrkurum og strauborðum. 

Estimar Calpe Suitopia 3 & Three, Calpe er á frábærum stað í miðbænum, með verslanir, veitingastaði og fjörugt mannlíf allt um kring og aðeins 50 metra frá ströndinni í Calpe. Mikið er af skemmtilegum hjólaleiðum í nágrenninu og í hótelinu er hjólaleiga og góð hjólageymsla. Stutt er í golf og aðra afþreyingu. 
Flott íbúðahótel fyrir fjölskylduna.

 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 78 km
  • Frá miðbæ: Frábær staðsetning nálægt miðbæ Calpe
  • Frá strönd: 50 m
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Nettenging
  • Handklæði fyrir hótelgarð: Gegn tryggingargjaldi
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Barnadagskrá
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka
  • Sturta: Ýmist sturta eða baðkar

Fæði

  • Fullt fæði, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun