fbpx Tivoli Lisboa

Tivoli Lisboa
4 stars

Vefsíða hótels

Einstaklega glæsilegt og sjarmerandi hótel á frábærum stað við Avenida de Liberdad-breiðstrætið í hjarta borgarinnar. Stutt í lúxusverslanir, gamla bæinn og golfvelli.

Í hótelinu eru 306 vistarverur, allt frá 20 fm herbergjum sem rúma tvo til þrjá, 40 fm svítum og upp í 250 fermetra íbúð. Vistarverur eru hinar glæsilegustu, innréttingar eru mismunandi en allar í klassískum stíl. Allar eru þær hið minnsta búnar stillanlegri loftkælingu og upphitun, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, síma, smábar, öryggishólfi, kaffivél, straujárni og strauborði. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur. Þráðlaust net stendur gestum til boða gegn gjaldi. 

Þó að Tivoli Lisboa standi við aðalbreiðstræti borgarinnar er gróðursæll garður með útisundlaug við hótelið. Þar er upplagt að njóta hvíldar frá ys og þys borgarlífsins um stund, sleikja sólina og slökkva þorstann við sundlaugarbarinn. Þar er einnig líkamsræktaraðstaða og hægt er að panta nudd. 

Veitingastaðirnir í hótelinu eru tveir. Á Brasserie Flo Lisboa á jarðhæðinni er áherslan á franska matargerð. Á efstu hæðinni er Terraço, þar sem hefðbundin portúgölsk matargerð er í hávegum höfð og vínseðillinn er tilkomumikill. Útsýnið þaðan yfir borgina er einstakt og það sama má segja um Sky barinn þar sem njóta má lifandi tónlistar á kvöldin. Við gestamóttökuna er Tivoli Caffe Lisboa þar sem boðið er upp á létta tapasrétti og snarl yfir daginn og fram á kvöld, en einnig sætabrauð, kaffi og úrval kokteila. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn, þar er töskugeymsla, hraðbanki, þvottaþjónusta og þurrhreinsun. Funda- og veislusalir eru 18 og aðstaða öll til fyrirmyndar. 

Tivoli Lisboa er frábærlega staðsett, hvort sem ætlunin er að njóta borgarinnar og alls sem hún hefur upp á að bjóða, eða spila golf upp á hvern dag. Glæsilegar hátískuverslanir, veitingastaðir og garðar eru allt um kring. Jarðlestarstöð er rétt við hótelið, gamli bærinn er í léttu göngufæri og heilir 18 golfvellir eru í þægilegri akstursfjarlægð, þar af 4 innan við 30 km frá hótelinu. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í miðbænum
  • Flugvöllur: 8 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Gegn gjaldi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun