Vincci Baixa hotel
Vefsíða hótels

Frábær staðsetning, þægindi og klassísk hönnun einkenna þetta skemmtilega, fjögurra stjörnu hótel sem staðsett er í Baixa hverfinu í Lissabon. Baixa má segja að sé miðja borgarinnar en þar er allt það helsta sem ferðamenn sækjast í og hverfið iðar af lífi.
Á hótelinu eru 86 herbergi sem skiptast í tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi. Herbergin eru snyrtileg og hönnun á þeim björt og stílhrein. Þau eru í ljósum litatónum en ekki þarf að leita langt til að finna smá litagleði hér og þar. Ljóst parket er á gólfum. Hvívetna er leitast við að hámarka þægindi en sem dæmi eru herbergin hljóðeinangruð. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, flatskjársjónvarp með gervihnattastöðvum, míníbar og öryggishólf. Á baðherbergjum eru sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.
Veitingastaðurinn á hótelinu heitir Tapas & Friends. Þar eru bornir fram tapasréttir, eins og nafnið gefur til kynna, en einnig aðrir fjölbreyttir réttir af matseðli, til dæmis réttir sem sérstaklega eru ætlaðir til að deila með öðrum. Morgunverður er borinn fram af girnilegu hlaðborði og alltaf er maturinn gerður úr bestu fáanlegu hráefnum hvers árstíma. Á hótelinu er líka setustofa með bar þar sem hægt er að panta drykki eða létt snarl og njóta í bóhemísku andrúmslofti sem er dæmigert fyrir þennan hluta borgarinnar. Einnig er hægt að panta mat upp á herbergið.
Umhverfi hótelsins er skemmtilegt og margt að skoða og sjá og einnig tilvalið fyrir þá sem vilja versla en stutt er í neðanjarðarlestina, almenningsvagna og sporvagna ef gestir vilja halda út úr hverfinu.
Starfsfólk hótelsins er alltaf tilbúið til að hjálpa gestum að plana dagana sína í borginni og bóka skoðunarferðir.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 7 km
- Miðbær: Í Baixa hverfinu
Aðstaða
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður