Bull Vital Suites & Spa Boutique hotel, Playa del Inglés
Vefsíða hótels

Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel er góður kostur á frábærum stað á ensku ströndinni. Útsýni er yfir golfvöllinn í Maspalomas. Einnig er fallegt útsýni yfir sandöldurnar og vitann. Stór innisundlaug og heilsulind. Nokkurra mínútna gangur er að Yumbo-verslunarmiðstöðinni og korter niður á strönd.
Í hótelinu eru 56 herbergi, sem skiptast í junior svítur, tvíbýli deluxe sem eru ýmist með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða bæði. Innréttingar eru nútímalegar og stílhreinar. Flísar eru á gólfum. Alls staðar er loftkæling, smábar, sími, sjónvarp, öryggishólf og þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er hárþurrka, baðsloppar og baðvörur. Inn á Junior svítum er einnig lítil eldhúsaðstaða þar sem má finna örbylgjuofn, lítinn vask og kæliskáp.
Morgunverður er borinn fram á veitingastaðnum Panorama í sundlaugargarðinum, með útsýni yfir Maspalomas-golfvöllinn og sandöldurnar. Í hótelgarðinum eru 2 sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða.
Það sem gerir þetta þægilega hótel enn betra en ella er heilsulindin sem er af bestu gerð. Innilaugin er 500 fermetrar með 34°C saltvatni, nuddtúðum og fossum. Boðið er upp á gufuböð og þurrgufu, leirböð, ilmolíugufuböð og nudd-, líkams- og snyrtimeðferðir af öllum gerðum gegn aukagjaldi. Þar er einnig líkamsræktaraðstaða. Hægt er að panta einkaþjálfara, sjúkraþjálfara og sjúkranuddara.Tvisar á dag er hægt að fara í Pílates. Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta, farangursgeymsla og hjólaleiga.
Bull Vital Suites henta öllum þeim sem vilja næra líkama og sál, á rólegu svæði, með golfvöllinn á aðra hönd og Ensku ströndina á hina. Stórgóð heilsulind þar sem boðið er upp fjölda meðferða. Tíu mínútna gangur í Yumbo-verslunarmiðstöðina, korter niður á strönd og allra handa afþreying á láði og legi allt um kring.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 33 km
- Frá miðbæ: Nokkurra mínútna gangur í miðbæ Ensku strandarinnar.
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Sundlaug
- Sundlaugabar
- Líkamsrækt
- Heilsulind
- Gufubað
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
- Sjónvarp
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður