Ohtels Belvedere
Vefsíða hótels

Ohtels Belvedere er gott 3 stjörnu hótel staðsett í um 700m fjarlægð frá ströndinni. Stutt er að fara í Port Aventura skemmtigarðinn frá hótelinu. Sundlaugagarðurinn er stór og rúmgóður. Þar er sundlaug með rennibrautum og "splash" svæði fyrir börnin. Sundlaugabarinn er með útisvæði þar sem hægt er að setjast niður og fá sér drykk og snarl. Veitingastaðurinn býður upp á ýmsa rétti af hlaðborði. Skemmtidagskrá er á hótelinu fyrir fullorðna og börn.
Herbergin eru nýlega uppgerð og fallega innréttuð. Þau eru ýmist með tveimur rúmum eða hjónarúmi. Sjónvarp, öryggishólf og minibar er á hverju herbergi og svalir. Loftkæling er á herbergjum. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið. Baðherbergin eru með sturtu.
Fjarlægðir
- Frá strönd: 700m
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Sundlaugabar
- Barnasundlaug
- Barnaleiksvæði
- Bar
- Sundlaug
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Gestamóttaka
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Lín og handklæðaskipti
- Verönd/svalir
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Sturta
Fæði
- Án fæðis, Morgunmatur, Hálft fæði