fbpx Senator Gran Via 21 | Vita

Senator Gran Via 21
4 stars

Vefsíða hótels

Ágætt 136 herbergja hótel í hjarta borgarinnar. Stendur við Callao torgið á aðal verslunargötu borgarinnar Gran Via. Í hótelbyggingunni er kaffihús og allt um kring eru verslanir (t.d. tvö stór H&M verslunarhús),  veitingastaðir og kaffihús.  Frá Gran Via eru göngugötur með fjölda verslana og vöruhúsa. Stutt er að ganga á torgin „Plaza Espana“ og „Plaza Mayor“.

Gestamóttakan er lítil og einungis nokkrir stólar, en á 2. hæð eru sófar. Á hótelinu er fallegur morgunverðarsalur, en hvorki veitingastaður né  bar, enda nóg af stöðum allt um kring og kaffihús í sömu byggingu.

Herbergi eru meðalstór, öll með parketgólfi. Þau eru öll loftkæld (upphituð) og með síma, sjónvarp i með flatskjá, öryggishólfi , geislaspilara, hraðsuðukatli (te- og kaffi)  og hárþurrku. Á smábarnum er vatn og gos, sem er innifalið í verði. Frítt, þráðlaust net er á öllu hótelinu.  Klakavél er á 2., 4. Og 6. hæð.

Hótelið hentar einstaklingum betur en hópum þar sem sameiginlega aðstaða er lítil.
Hótel Senator Gran Via 21 og Gran Via 70 eru systurhótel og um 10 mínútna gangur á milli þeirra.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 11 km
  • Miðbær: Í miðborginni
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging: Án endurgjalds

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun