Alcudia og Can Picafort
Svæðið samanstendur af gamla bænum í Alcudia, sandströndinni sem teygir sig suð-austur til Can Picafort og fallegri smábátahöfninni sem er jafnframt miðpunktur svæðisins. Þar er mikið úrval af veitingastöðum, kaffihúsum og verslunum. Fjölbreytt götulíf er áberandi sérstaklega eftir að sólin lækkar á lofti og mikið um að vera fyrir alla aldurshópa.
Frá höfninni í suð-austurátt liggur glæsileg strandlengja, yfir 10km löng, til smábæjarins Can Picafort. Þar er óviðjafnanlegt að sleikja sólina og frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Í Ca´n Picafort er einnig að finna ágætis úrval af veitingastöðum og verslunum. Frábærar gistingar eru í boði á báðum þessum stöðum.
Í gamla bænum í Alcudia sem liggur um 2 km norður af höfninni er einstakur lítill bær sem á sér mikla sögu. Elstu minjar þar eru frá tímum Rómverja, en þetta svæði var þeirra höfuðvígi. Vel varðveittur og endurbyggður borgarmúrinn umlykur bæinn og er frá miðöldum að spænskum sið og helsta kennileytið er líkt og tíðkast í spænskum borgum og þorpum gotneska kirkjan Sant Jaume. Mælt er með gönguferð um þorpið þar sem gaman er að setjast niður og gæða sér á tapas-réttum heimamanna, nú eða kíkja á markað sem þar er tvisvar í viku. Fjölskyldurnar flykkjast á svæðið enda er ströndin þar dásamleg.
Akstur suður til Palma er um 45 mín. Leigubíll kostar ca 75 evrur. Strætó kostar innan við 10 evrur hvor leið og nokkrar ferðir eru farnar á degi hverjum.