Á einni helgi er ekki mögulegt að komast yfir allt sem í boði er en hér koma punktar um áhugaverða staði sem gaman er að heimsækja og skoða.
Pöbbarölt
Pöbba menningin á Írlandi er í hæsta máta lifandi og er þess vegna pöbba heimsókn eitthvað sem allir verða að gera, líka þeir sem eru ekkert sérstaklega hrifnir af bjór. Í borginni er að finna ótal marga og þó er flesta þeirra að finna í Temple Bar hverfinu og heyra má útá göturnar írskir þjóðlaga og tregasöngvar. Sögufrægir eru þó O´Donoghuges á Merrion Row þar sem The Dubliners voru uppgötvaðir og The Brazen Head, elsti pöbb borgarinnar, stofnaður 1198.
Laugardagur í Temple Bar
Temple Bar er ekki bara pöbb heldur heilt hverfi þar sem Dublinarbúar og ferðamenn rölta hlið við hlið. Hér er mikið líf alla daga vikunar en laugardagur, með allskyns markaði, er uppáhald margra. Í Cows Lane koma hönnuðir út með skartgripi, fatnað og allkyns list á milli 10 og 17. Temple Bar torg breytist í paradís bókaunnenda á milli 11 og 18 og þegar svengdin segir til sín þá er bara að kíkja á matarmarkaðinn við Meeting House Square sem er opin til 16:30.
Jameson Distillery
Staðsett í hjarta borgarinnar og heimsókn i Old Jameson viský verksmiðjuna er meira en bara ferð, það er spennandi og grípandi upplifun sem örugglega fræðir og skemmtir gestum. Upplifið sögu John Jameson, andrúmsloftið og ofar öllu, bragðið. Þú munt uppgötva leyndarmálið hvernig þrjú einföld efni, vatn, bygg og ger geta breyst í mjúkan eðaldrykk sem er og verður alltaf Jameson Irish Whiskey.
Hop On Hop Off
Ferð um borgina í vögnum með leiðsögn (enskumælandi) hljómar kannski einfalt en er reglulega skemmtileg. Nokkur fyrirtæki bjóða uppæa slíkar ferði eins og t.d Dublin Bus þar sem maður getur farið af og í vagnana eins og manni hentar. Hægt er að kaupa dagspassa eða passa sem duga fleiri daga. Í kirkjunni á Suffolk Street er að finna upplýsingamiðstöð fyirr ferðamenn og má þar sjá annað spennandi sem í boði er.
Trinity háskóli
Afar fallegt bókasafn sem vert er að skoða og þar er einnig að finna Book of Kells. Handrit þetta er skrifa um 800 A.D. og talið eitt það fallegasta í heimi, skrifað af írskum munkum og eru Guðspjöllin fjögur skrifuð á latínu. Bókin var grafin í jörðu vegna hræðslu um að Víkingar kæmu böndum á hana. Eftir að hún fannst aftur hefur hún verið geymd örugglega í Trinity eða frá 1653. Hákólabygging Trinity Háskóla er einnig fallegt og gaman að ganga um lóð skólans.
National Gallery of Ireland
Hér að finna safn af 2,500 málverkum og tug þúsund af öðrum listaverkum s.s. vatnslitamyndum, teikningum og skúlptúrum. Merkustu verkin eru m.a eftir Caravaggio, Picasso, Van Gogh og Monet.
National Museum of Ireland
Gangið inná Þjóðminjasafnið á Kildare Street og látið töfra flytja ykkur aftur til fortíðar. Afar fallegt og skemmtilega uppsett safn.
Dublinia
Saga Dublinar borgar, frá því Víkingar komu og skírðu borgina Dublin, sem þýðir Svarta tjörn. Á leið um safnið rekur maður augun í nöfn sem við könnumst við úr Íslendingasögunni.
Phoenix Park
Þetta er einn af stærstu borgargörðum í Evrópu. Í garðinum er mikið fuglalíf og um garðinn hlaupa villt dádýr. Einnig er dvalarstaður Forsetans þarna og ameríska Sendiráðið.
Dublin Zoo
Sjáið margar sjaldgæfar og framandi dýrategundir í þessum fallega og afar snyrtilega garði. Dublin Zoo er staðsettur í Phoenix Garðinum í hjarta Dublinar
Kilmainham Gaol
Þó væri ekki nema bara að þeirri einu ástæðu þá er Kilmainham Gaol merkilegt fyrir að vera stærsta ónotaða fangelsið á eyjunni. Heimsókn hingað gefur gestum raunsætt innsýni um hvernig það var að vera lokaður hér inní og refsað frá því það fangelsið opnaði 1796 og þar til því lokaði 1924, það allra versta og hryllilegasta sem skrifað er um í írskri nútíma sögu.
Hjólað um Dublin
Mögulegt er að leigja hjól sem eru á stöndum víðsvegar um borgina og er það skemmtilegur ferðamáti.