Dagur 1: Farið frá eyjunni Sal til Santiago eyju
(heill dagur þar sem Santiago eyja er könnuð og borðaður hádegismatur í Tarrafal).
Í þessari ferð til Praia á Santiago eyju er farið frá hótelinu og á flugvöllinn en þangað þarf að mæta tveimur tímum fyrir brottför vegna ýmissa formlegheita tengdum áætlunarfluginu. Þegar komið er á flugvöllinn er boðið upp á aðstoð.
Í ferðinni er haldið inn til landsins til að uppgötva fjölbreytt landslag þar sem fjöll, dalir og lækir mætast og endurspegla ímynd eyjarinnar. Á leiðinni er farið hjá São Domingos þorpinu þar sem heimsótt er vistkerfismiðstöð en einnig er farið í gegnum borgina Assomada þar sem stoppað er stuttlega. Ferðin heldur áfram og fer um Serra Malagueta fjallgarðinn þar sem er góður staður til að njóta stórkostlegs útsýnis í allar áttir. Þegar komið er til Tarrafal er farið í skoðunarferð um sögufrægt fangelsi frá nýlendutímum. Einnig er möguleiki á að fá sér sundsprett í fallegri vík í Tarrafal. Hádegisverðar er notið á veitingastað á svæðinu en eftir matinn er farið eftir norðurströndinni til baka til höfuðborgarinnar Praia.
Kvöldverður og gisting á Oásis Praiamar (4*) eða svipuðu hóteli.
Dagur 2: Farið frá Santiago eyju til Fogo eyju
Cha das caldeiras með hádegismat.
Morgunverður er í boði af hlaðborði á hóteli. Því næst hittir þú ferðafulltrúa og ferð á flugvöllinn til að ganga frá upplýsingum vegna áætlunarflugsins til eyjarinnar Fogo. Þegar þú lendir færðu aðstoð frá innfæddum.
Þessi ferð hefst á því að haldið er í átt að þjóðgarðinum Cha das Caldeira til að skoða sig um en um er að ræða stærsta ferðamannastað Grænhöfðaeyja og eitt dásamlegasta landslag í heimi. Farið er frá São Filipe en fyrst er stoppað í Forno til að heimsækja eitt af hverfunum þar sem ræktunaraðferð með áveitu er notuð, tækni sem bændur eyjarinnar notast við til að lágmarka áhrif þurrkatímabils. Ferðin heldur áfram í átt að Achada Furna til að heimsækja samfélag þar sem nýtt húsnæði var reist fyrir fólk frá Chã das Caldeiras eftir eldgosin árið 1994 og 2014. Stór hluti þess hefur sest að í Achada Furna. Næsta stopp ferðarinnar er Cabeça Fundão en þar er fallegt útsýni yfir marga gamla gíga og litríkt landslag. Að lokum er komið að Chã das Caldeiras þjóðgarðinum en það fyrsta sem ferðamenn taka eftir er sláandi fallegt útsýni af hæsta punkti Grænhöfðaeyja. Næst er farið í eitt af þeim tveimur þorpum sem voru eyðilögð í eldgosunum 2014/2015. Þar hvarf 98% heimila, skóla, veitingastaða, hótela – allt er farið – en fólkið er komið aftur og er tilbúið að byggja samfélagið sitt upp á ný. Hádegisverður er snæddur á veitingastað í grenndinni en hér er tilvalið að smakka hefðbundið Chã das Caldeiras vín sem er betur þekkt sem Manecon. Svo er haldið aftur til São Filipe.
Kvöldverður er borinn fram á veitingastað sem er dæmigerður fyrir það sem tíðkast hér um slóðir.
Gist er á Hotel Xaguate (4*) eða svipuðu hóteli.
Dagur 3: Farið frá FOGO eyju til Santiago
og svo til eyjarinnar São Vicente
Morgunverður er snæddur á hótelinu og svo er kominn tími til að hitta fararstjórann sem hjálpar þér að komast frá hótelinu á flugvöllinn og leiðir þig í gegnum formlegheit sem tengjast áætlunarfluginu til Santiago og svo til eyjarinnar São Vicente. Þegar komið er þangað tekur annar fararstjóri við og skipuleggur ferð inn á hótelið.
Kvöldverður og gisting á Hotel Oasis Porto Grande (****) eða svipuðu hóteli.

Dagur 4: Frá São Vicente til Santo Antão eyju
Boðið er upp á morgunmat af hlaðborði áður en tími er kominn til að hitta fararstjórann og koma sér að Mindelo höfninni til að ganga um borð á ferju sem fer til Santo Antão eyju. Um er að ræða klukkustundarferð.
Þegar komið er á áfangastað tekur fararstjóri á móti þér á Porto Novo höfninni og þar með hefst heilsdagsferð um allt það helsta sem er að sjá og skoða á eyjunni. Farið er á þekktar slóðir Road of Corda, farið til Cova, Águas das Caldeiras, Ribeira Grande, Ponta do Sol og auðvitað Vale de Paul, þar sem dásamlegar andstæður verða til þegar annars vegar þurrt landslag í suðri mætir gróðursælum skógi í norðri. Hádegismatur er innifalinn á veitingahúsi á svæðinu. Síðan er haldið aftur til Porto Novo til að taka ferjuna aftur til São Vicente.
Kvöldverður er snæddur á hefðbundnum veitingastað á svæðinu.
Gisting er á Hotel Oasis Porto Grande (****), eða svipuðu hóteli.
Dagur 5: São Vicente eyja
Dagurinn hefst á morgunverði af hlaðborði á hótelinu. Fararstjórinn tekur svo á móti öllum og haldið er upp í ferð til að skoða allt það ólíka landslag sem São Vicente hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru fallegar strendur eða útdauð eldfjöll.
Einn af hápunktum ferðarinnar er Baía das Gatas, þorp sem er þekktast fyrir tónlistarhátíð sem haldin er þar og náttúrulaugar en gefinn er tími til að kanna þær nánar. Annar hápunktur er Monte Verde með útsýni til allra átta úr 779m hæð. Calhau héraðið er einnig stórkostlegt með öll sín eldfjöll volcanoes og útsýni til eyjanna Santa Luzia og Praia Grande. Hádegisverður er snæddur á veitingahúsi á svæðinu en eftir máltíðina er haldið aftur til Mindelo borgar.
Á þeim tíma sem fararstjórinn tilgreinir er ferðinni lokið og fara þarf á flugvöllinn til að ganga frá pappírum fyrir áætlunarflugið frá São Vicente og aftur til eyjarinnar Sal. Þegar þangað er komið er haldið aftur á hótelið og þá er ferðinni lokið.
Verð og innifalið
Verð: 179.900 kr.
Á mann m.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 19.900 kr.
Innifalið
• Borgarskattar, greiddir á hverju hóteli þegar gestir eru skráðir inn.
• Innanlandsflug frá Sal til Sao Vicente og til baka.
• Ferja frá São Vicente til Santo Antão og til baka.
• Fjórar nætur á hótelum sem voru nefnd eða svipuð hótel.
• Fjórir hádegisverðir á veitingastöðum í dagsferðum.
• Tveir kvöldverðir á hótelum.
• Tveir kvöldverðir á veitingastöðum með lifandi tónlist
• Ferðir milli hótels og flugvallar og frá flugvelli að hótelum.
• Ferðir í öllum heimsóknum (sjá dagskrá).
• Fararstjórn á ensku.
Hópurinn þarf að vera lágmark 20 manns til að íslenskur fararstjóri sé með í för.