Dagur 1, Frá eyjunni SAL til eyjarinnar São Vicente
Ferðin hefst á því að fara frá hótelinu og á flugvöllinn en þangað þarf að mæta tveimur tímum fyrir brottför vegna ýmissa formlegheita tengdum áætlunarfluginu. Flogið er til Praia – höfuðborgar Grænhöfðaeyja – sem er staðsett á Santiago eyju. Á flugvellinum tekur fararstjóri á móti ykkur.
Kvöldverður og gisting er á Oásis Porto Grande (4*) eða svipuðu hóteli.
Dagur 2, Frá São Vicente til Santo Antão
Boðið er upp á morgunmat af hlaðborði áður en tími er kominn til að hitta fararstjórann og koma sér að Mindelo höfninni til að ganga um borð á ferju sem fer til Santo Antão eyju. Um er að ræða klukkustundarferð.
Þegar komið er á áfangastað tekur fararstjóri á móti þér og þar með hefst heilsdagsferð um allt það helsta sem er að sjá og skoða á eyjunni. Farið er á þekktar slóðir Road of Corda, farið til Cova, Águas das Caldeiras, Ribeira Grande, Ponta do Sol og auðvitað Vale de Paul, þar sem dásamlegar andstæður verða til þegar annars vegar þurrt landslag í suðri mætir gróðursælum skógi í norðri. Hádegismatur er innifalinn á veitingahúsi á svæðinu. Síðan er haldið aftur til Porto Novo til að taka ferjuna aftur til São Vicente.
Kvöldverður og gisting er á Hotel Oasis Porto Grande (****), eða svipuðu hóteli.

Dagur 3, São Vicente eyja
Dagurinn hefst á morgunverði af hlaðborði á hótelinu. Fararstjórinn tekur svo á móti öllum og haldið er upp í ferð til að skoða allt það ólíka landslag sem São Vicente hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru fallegar strendur eða útdauð eldfjöll.
Einn af hápunktum ferðarinnar er Baía das Gatas, þorp sem er þekktast fyrir tónlistarhátíð sem haldin er þar og náttúrulaugar en gefinn er tími til að kanna þær nánar. Annar hápunktur er Monte Verde með útsýni til allra átta úr 779m hæð. Calhau héraðið er einnig stórkostlegt með öll sín eldfjöll volcanoes og útsýni til eyjanna Santa Luzia og Praia Grande. Hádegisverður er snæddur á veitingahúsi á svæðinu en eftir máltíðina er haldið aftur til Mindelo borgar.
Kvöldverður er snæddur á veitingastað með lifandi tónlist.
Gist er á Hotel Oasis Porto Grande (4*) eða svipuðu hóteli.

Dagur 4, São Vicente til Sal
Morgunverðar er notið á hótelinu áður en fararstjórinn er hittur því fara þarf á flugvöllinn til að ganga frá pappírum fyrir áætlunarflugið frá São Vicente og aftur til eyjarinnar Sal. Þegar þangað er komið er haldið aftur á hótelið og þá er ferðinni lokið.
Verð og innifalið
Verð: 115.900 kr.
Á mann m.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 16.900 kr.
Innifalið
• Borgarskattar eru greiddir á hverju hóteli þegar gestir eru skráðir inn.
• Verð innihalda innanlandsflug frá Sal til Sao Vicente og til baka.
• Einnig ferju frá São Vicente til Santo Antão og til baka.
• Þrjár nætur á hótelunum sem voru nefnd eða svipuðum hótelum.
• Tveir hádegisverðir á veitingastöðum í dagsferðum.
• Tveir kvöldverðir á hótelum þar sem ferðalangar gista.
• Einn kvöldverðir á veitingastöðum með lifandi tónlist
• Ferðir milli hótelsins og flugvallarins og frá flugvöllum að hótelum.
• Ferðir í öllum heimsóknum (sjá dagskrá).
• Fararstjórn á ensku.
Hópurinn þarf að vera lágmark 20 manns til að íslenskur fararstjóri sé með í för.