Dagur 1: Farið frá eyjunni Sal til Santiago eyju
(heill dagur þar sem Santiago eyja er könnuð og borðaður hádegismatur í Tarrafal).
Í þessari ferð til Praia á Santiago eyju er farið frá hótelinu og á flugvöllinn en þangað þarf að mæta tveimur tímum fyrir brottför vegna ýmissa formlegheita tengdum áætlunarfluginu. Þegar komið er á flugvöllinn er boðið upp á aðstoð.
Í ferðinni er haldið inn til landsins til að uppgötva fjölbreytt landslag þar sem fjöll, dalir og lækir mætast og endurspegla ímynd eyjarinnar. Á leiðinni er farið hjá São Domingos þorpinu þar sem heimsótt er vistkerfismiðstöð en einnig er farið í gegnum borgina Assomada þar sem einnig er stoppað stuttlega. Ferðin heldur áfram og fer um Serra Malagueta fjallgarðinn þar sem er góður staður til að njóta stórkostlegs útsýnis í allar áttir. Þegar komið er til Tarrafal er farið í skoðunarferð um sögufrægt fangelsi frá nýlendutímum. Einnig er möguleiki á að fá sér sundsprett í fallegri vík í Tarrafal. Hádegisverðar er notið á veitingastað á svæðinu en eftir matinn er farið eftir norðurströndinni til baka til höfuðborgarinnar Praia.
Kvöldverður og gisting á Oásis Praiamar (4*) eða svipuðu hóteli.
Dagur 2: Farið frá Santiago eyju til Fogo eyju
Cha das caldeiras með hádegismat.
Morgunverður er í boði af hlaðborði á hóteli. Því næst hittir þú ferðafulltrúa og ferð á flugvöllinn til að ganga frá upplýsingum vegna áætlunarflugsins til eyjarinnar Fogo. Þegar þú lendir færðu aðstoð frá innfæddum.
Þessi ferð hefst á því að haldið er í átt að þjóðgarðinum Cha das Caldeira til að skoða sig um en um er að ræða stærsta ferðamannastað Grænhöfðaeyja og eitt dásamlegasta landslag í heimi. Farið er frá São Filipe en fyrst er stoppað í Forno til að heimsækja eitt af hverfunum þar sem ræktunaraðferð með áveitu er notuð, tækni sem bændur eyjarinnar notast við til að lágmarka áhrif þurrkatímabils. Ferðin heldur áfram í átt að Achada Furna til að heimsækja samfélag þar sem nýtt húsnæði var reist fyrir fólk frá Chã das Caldeiras eftir eldgosin árið 1994 og 2014. Stór hluti þess hefur sest að í Achada Furna. Næsta stopp ferðarinnar er Cabeça Fundão en þar er fallegt útsýni yfir marga gamla gíga og litríkt landslag. Að lokum er komið að Chã das Caldeiras þjóðgarðinum en það fyrsta sem ferðamenn taka eftir er sláandi fallegt útsýni af hæsta punkti Grænhöfðaeyja. Næst er farið í eitt af þeim tveimur þorpum sem voru eyðilögð í eldgosunum 2014/2015. Þar hvarf 98% heimila, skóla, veitingastaða, hótela – allt er farið – en fólkið er komið aftur og er tilbúið að byggja samfélagið sitt upp á ný. Hádegisverður er snæddur á veitingastað í grenndinni en hér er tilvalið að smakka hefðbundið Chã das Caldeiras vín sem er betur þekkt sem Manecon. Svo er haldið aftur til São Filipe.
Kvöldverður er borinn fram á veitingastað sem er dæmigerður fyrir það sem tíðkast hér um slóðir.
Gist er á Hotel Xaguate (4*) eða svipuðu hóteli.

Dagur 3: Farið frá FOGO eyju til Santiago
og svo til eyjarinnar Sal
Morgunverður er snæddur á hótelinu og svo er kominn tími til að hitta fararstjórann sem hjálpar þér að komast frá hótelinu á flugvöllinn og leiðir þig í gegnum formlegheit sem tengjast áætlunarfluginu til Santiago og aftur til eyjarinnar Sal. Þegar þangað er komið er haldið á hótelið og þá er ferðinni lokið.
Verð og innifalið
Verð: 114.900 kr.
Á mann m.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 16.900 kr.
Innifalið
• Borgarskattar, greiddir á hverju hóteli þegar gestir eru skráðir inn.
• Innanlandsflug frá Sal til Santiago, frá Santiago til Fogo og til baka.
• Tvær nætur á hótelunum sem voru nefnd eða svipuðum hótelum.
• Tveir hádegisverðir á veitingastöðum í dagsferðum.
• Einn kvöldverður á hótelinu þar sem gist er.
• Ferðir milli hótelsins og flugvallarins og frá flugvelli að hótelum.
• Ferðir í öllum heimsóknum (sjá dagskrá).
• Fararstjórn á ensku.
Hópurinn þarf að vera lágmark 20 manns til að íslenskur fararstjóri sé með í för.