fbpx Golf á Tenerife | Vita

Hér að neðan er listi yfir golfvelli en athugið að yfirleitt þarf að panta rástíma fyrirfram.

GOLF LAS AMÉRICA:

Er 18 holu golfvöllur á Américas svæðinu sem er par 72 – 5860m. Hægt er að leigja allan búnað og fara í kennslu hjá golfkennurum klúbbsins. Á svæðinu er verslun, veitingastaður og snakkbarir.

GOLF COSTA ÁDEJE:

Er 27 holu völlur með fallegu útsýni yfir til eyjunnar La Gomera og er hann par 72 – 5889m. Hægt að leigja allan útbúnað og í klúbbhúsi er veitingastaður

GOLF DEL SUR:

Er 27 holu völlur sem er sérstakur að því leyti að  sandgryfjurnar eru með svörtum sandi.  Völlurinn er par 72 m.v. 18 holur. Á staðnum  er golfskóli, kylfuleiga, verslun, veitingastaður o.fl.

AMARILLA GOLF:

Er 18 holu golfvöllur sem staðsettur er í fallegu umhverfi. Hann er par 72 – 5728m. Gott æfingarsvæði er á staðnum og hægt er að leigja allan útbúnað.

ABAMA GOLF RESORT:

Er 18 holu golfvöllur sem er við rætur Tiede fjallsins og er hæsti punktur hans í 315m hæð frá sjávarmáli. 
Par 72 – 5934m.

GOLF LOS PALOS:

Er 9 holu golfvöllur nálægt bænum Arona.  

REAL CLUB DE TENERIFE:

Er elsti golfvöllurinn á Tenerife en hann var opnaður árið 1932.  Hann er staðsettur nálægt höfuðstaðnum Santa Cruz á norður hluta eyjunnar. Par 71 – 5750m  

Myndir: 
Mynd: 
kanari_tenerife_vita
Myndatexti: 
Golf á Tenerife

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun