Kráarkvöld á „ekta írskri krá“,
Við bjóðum upp á slíka ferð eina kvöldstund á hinni klassísku sveitakrá Merry Ploughboys sem hefur heillað landann með góðum mat í bland við írskan þjóðsöng og dans
MP pub
Staðsettur í útjaðri Dublin við rætur Wiclow fjalla.
Kráin ber nafn hljómsveitarinnar Merry Ploughboys en liðsmenn hennar, sem hafa spilað saman frá árinu 1988, halda uppi fjörinu á staðnum á hverju kvöldi. Þeir hafa átt og rekið krána frá árinu 2006 og kunna svo sannarlega að halda uppi fjöri og einstakri stemmningu.
Hér er boðið upp á írska kvöldskemmtun eins og hún gerist hvað best, ísrkur matur, írsk tónlist og frábærir dansarar sem svo sannarlega eru fær í hinum einstaka steppdansi.
Tími: Farið um kl. 18:00 frá Shelbourne hótelinu (við Stephens green garðinn) og ekið á krána. Aksturinn tekur liðlega hálftíma.
Komið til baka um kl. 23:00.
Verð frá: 9.500 kr.
Innifalið: Akstur á vegum krárinnar, þriggja rétta kvöldverður og írskir dansar