fbpx Playa de Palma - Palma Nova - Santa Ponsa | Vita

Palma Nova

Palma Nova er staðsett rétt vestur af höfuðstaðnum Palma. Breið og falleg sandströnd, ein sú besta í Palma-flóanum. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk og gæði í fyrirrúmi. Stutt í golfvelli, lifandi tónlist á flestum börum, fínir veitingastaðir og töluvert af verslunum.  Akstur milli Palma Nova og Palma er eingöngu um 15 mín. Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli með fararstjóra eða taka leigubíl. Einnig eru reglulegar strætóferðir. 

Santa Ponsa

Santa Posa er Íslendingum góðum kunn, og stendur vestan megin á Figuera-höfðanum. Falleg sandströnd í sjarmerandi vík, þar sem byggð er í hæðum sitt hvoru megin við. Líflegt götulíf, veitingastaðir og verslanir. Fallegt umhverfi með góðum hótelum. Stutt í skemmtilega golfvelli og til Palma. Vegalengdin til höfuðstaðarins er aðeins um 20 km, eða um 20 mín akstur.

Playa de Palma

Playa de Palma stendur austan megin við höfuðstaðinn Palma og er rétt suður af flugvellinum. Þessi staður er fyrir alla, unga sem aldna, einstaklinga sem og fjölskyldur. Gríðarlega falleg strönd og líflegt mannlíf. Úrval veitingahúsa, bara og verslana.  Margir Íslendingar þekkja þennan stað og þá gististaði sem í boði. Vegalengd til Palma er um 10 km. 

Myndir: 
Mynd: 
hotel_leman_mallorca_playa_de_palma_-_cut_4.jpg

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun