fbpx Söfn í Lissabon | Vita

Sagan lifir hér í menningunni og söfnunum. 

Museu Calouste Gulbenkian:

(Avenida de Berna 45.) Ekki mjög stórt, en eitt  fallegasta og fjölbreytilegasta safn sinnar tegundar í heimi. Alþjóðlegt  hágæðasafn! Opið frá 10.00-17.45.  Við hliðina er safn nútímalistar: Centro de Arte Moderna.

Museu National de Arte Antiga:

(Rua das Janelas 95.) Evrópsk og portúgölsk list og listiðnaður frá 14. fram til 20. aldar; m.a. meistarastykki portúgalskrar málaralistar á sex myndtöflum.
Þær nefnast: „Vegsömum heilags Vincents“ eftir Nuno Gonçalves, eitt frægasta verk flæmska málarans Hieronymus Bosch. Þrískipt altaristafla sem heitir Freisting heilags Antóníusar, uppáhaldsdýrlings Lissabonbúa. „Heilagur Hieronymus“ eftir þýska málarann Albrecht Dürer. Þarna eru einnig frægar myndir eftir van Dick og Cranach, eftir Spánverjann Velasques og Ítalann Piero della Francesca af heilögum Ágústínusi o.fl. Opið 10.00-18.00 föstudaga og laugardaga.

Museu Coleçcão Berardo:

(Centro Cultural de Belém) Eitt þekktasta einkasafn í heimi.  Myndir m.a. eftir Hans Arp, Salvadore Dalí, Max Ernst, Joan Míro og Pablo Picasso.
Opið alla daga 10:00-19:00.

Casa das Histórias í Cascais:

Sýnir „frásagnarlist“  frægasta portúgalska kvenmálarans í dag, Paula Rego. Einnig eru verk eftir listakonuna á Museu da Presidência í Lissabon.

Museu Nacional dos Coches:

(Praça Alfonso de Albuquerque, Belém.) Safn glæsivagna kóngafólks. 10.00-18.00. + fjölmörg önnur söfn, m.a. Museu nacional de Azulejo og Mueu do Fado á bökkum Tejo-ár.

Myndir: 
Mynd: 
lissabon_borg_2.jpg

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun