fbpx Söfn og listasetur | Vita

Tugir merkra safna eru í Madríd. 

Hér verða aðeins nefnd fjögur:

1. Museo Nacional del Prado: Paseo del Prado S/N.

El Prado er eitt merkasta og fjölsóttasta listasafn í heimi og hefur að geyma sérlega ríkulegt safn málverka eftir evrópska meistara frá 16. öld og til 19. aldar. Hæst ber hina „heilögu“ þrenningu Velázquez, el Greco og Goya. En einnig meistara á borð við Tiziano, Rubens, Bosch, Veronese, Tintoretto, Van Dyck, Dürer og svo mætti áfram telja. Opið mán.-lau.: 10:00-20:00. Sun: 10:00-19:00

2. Museo Nacional Centro de Arte Reina Sofía: Santa Isabel, 52 

Listamiðstöð Soffíu drottningar, eða Museo Reina Sofía, eins og það er nefnt í daglegu tali, hefur að geyma list 20. aldar og til dagsins í dag. Margskonar tímabundnar sýningar eru einnig haldnar í safninu.  Fastasafnið hefur m.a. að geyma verk eftir spænsku meistarana Pablo Picasso, Salvador Dalí og Joan Miró. Frægasta verkið er án efa Gernika eftir Picasso. Opið  mán.-lau. 10:00- 21:00 Sun. 10:00- 14:30.

3. Museo Thyssen-Bornemisza: Paseo del Prado, 8 

Þetta safn fyllir má segja í tímagötin sem kunna að vera í Prado-safninu og Soffíusafninu sem bæði eru í grenndinni.  Safnið spannar allt frá ítölskum og niðurlenskum 13. aldar meisturum til málara 21. aldarinnar og hefur að geyma m.a. þýsk endurreisnarverk, verk impressjónista, expressjónista og verk bandarískra 19. Aldar manna.  

4. CaixaFórum: Paseo del Prado 36.

Listasetrið CaixaFórum er helgað nútímalist og heldur margskonar tímabundnar sýningar á öllum gerðum hennar. Það er aðeins nokkurra ára.  Við hönnun var gömul spennistöð sem fyrir var samtvinnuð nýrri byggingu. Athygli vekur einnig lóðrétti garðurinn á húsvegg við hlið safnins. Opið alla daga 10:00–20:00.

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun