fbpx Taverna Trilussa | Vita

Vinsæll af heimamönnum

Veitingastaðurinn er afar vinsæll af heimamönnum, staðsettur í hinu heillandi Trastevere hverfið þar sem ilmandi staðir og kaffihús gleðja með fjölbreyttri flóru af fólki.  Maturinn hér er algjörlega í sérflokki og enginn á eftir að gleyma Ravfioli Mimosa eftir að hafa bragðað á því, en hann er talinn besti pastaréttur hússins.  Þjónarnir á staðnum eru skemmtilega kærulausir, með góðan húmor og passa sig að brosa ekki of mikið! Með matnum er hægt að smakka á frábærum vínum en Vínkjallarinn telur liðlega 1000 víntegundir. Gaman frá því að segja að Trillusa hlaut "Certificate of Excellence 2014" frá Tripadvisor.

Heimilisfang: Trilussa  Via del Politeama 23/25  Trastevere

Myndir: 
Mynd: 
taverna_trilussa_800x600.jpg
rom_matur_vita.jpg

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun