Þægilegt fyrir byrjendur, langar og góðar brekkur fyrir þá sem elska langt rennsli, notalegar skógarbrekkur og svo eru líka brattari bekkur fyrir þá huguðu. Barnagarður fyrir krakkana að ógleymdum gönguskíðabrautunum. Dalurinn er einn af þeim fallegustu í ítölsku Ölpunum, sá næsti við Val Gardena – sunnan við Dólómítana. Brekkurnar eru langar og breiðar og þykja heimamenn einstakir snillingar að hugsa vel um brekkurnar. Í fjallinu eru 30 veitingastaðir, fjallakaofar og barir en sá frægasti er líklega kampavínsbarinn – sem allir verða að heimsækja.
Myndir:
Mynd:
val_di_femme_skidi_20.jpg