Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir
Fararstjóri
Ásta er lærður nuddari og leiðsögumaður.
Hún dvaldi í Santa María á eyjunni Sal á Grænhöfðaeyjum nokkra mánuði árin 2017 og 2018 og kenndi börnum þar myndlist.
Aðalheiður Ásta er fædd árið 1972 og tók próf frá Leiðsöguskóla Íslands á ensku vorið 2004 og svo aftur á frönsku haustið 2006 og vann sem leiðsögumaður á Íslandi um sinn að loknu námi.
Einnig er hún með meistaragráðu í listmeðferð og starfar við Tobias School og Art and Therapy og áður við Rudolf Steiner House í London.
Ásta er líka sjálfstætt starfandi sem listmeðferðarfræðingur í athvörfum í London sem aðstoða konur sem hafa gengið í gegnum ýmsa erfiðleika. Hún hefur um árabil unnið á Sólheimum í Grímsnesi m.a. við rekstur, starfsmannahald og sem stuðningsfulltrúi.
Hún talar ensku, frönsku, dönsku, þýsku og spænsku og elskar lífið á Sal og kolféll fyrir tónlistinni, dansinum og ferska fiskinum á Grænhöfðaeyjum.