Agnieszka og Róbert
Fararstjóri
Agnieszka og Róbert eru fararstjórar VITA í Gdansk. Þau eru lipur í mannlegum samskiptum og hafa reynslu af fararstjórn og hafa farið margar ferðir til Póllands.
Agnieszka Szczodrowska er fædd og uppalin í Póllandi í nágrenni við Gdansk. Hún flutti til Íslands 19 ára gömul og var fljót að samlagast íslensku samfélagi og læra íslensku.
Aga eins og hún er kölluð, er lærður heilsunuddari og nýtur sín í starfi við sjúkraþjálfun. Hún vinnur mikið sem túlkur, er tveggja barna móðir og gift Róbert Bjarnasyni.
Aga hefur farið margar ferðir til Póllands sem fararstjóri, bæði með minni og stærri hópa. Aga hefur ferðast víða um Evrópu, hefur áhuga á sögu og gamalli menningu er mjög fróð um Gdansk og nágrenni.
Róbert Bjarnason er fæddur og uppalinn á Raufarhöfn, 43ára, tveggja barna faðir. Kona hans er Aga, heilsunuddari og fararstjóri í ferðum til Póllands.
Hann er lærður íþróttaþjálfari og vann áður sem íþrótta-, sund- og tölvukennari við Grunnskólann á Raufarhöfn. Áhugamálin eru vetraíþróttir, motorsport og fótbolti.
Róbert er kerfisstjóri hjá Advania, lipur í mannlegum samskiptum og hefur oft farið til Póllands, bæði í ferðir með fjölskyldunni og sem fararstjóri.