Agnieszka Szczodrowska
Fararstjóri
Aga hefur farið margar ferðir til Póllands sem fararstjóri. Hún hefur einnig ferðast víða um Evrópu og er mjög fróðu um Gdansk og nágrannaþjóðir.
Agnieszka er fædd og uppalin í Póllandi í nágrenni við Gdansk. Hún flutti til Íslands 19 ára gömul og var fljót að samlagast íslensku samfélagi og læra íslensku.
Aga eins og hún er kölluð, er lærður heilsunuddari og nýtur sín í starfi við sjúkraþjálfun. Hún vinnur mikið sem túlkur, er tveggja barna móðir og gift Róbert Bjarnasyni.
Aga hefur farið margar ferðir til Póllands sem fararstjóri, bæði með minni og stærri hópa. Aga hefur ferðast víða um Evrópu, hefur áhuga á sögu og gamalli menningu er mjög fróð um Gdansk og nágrenni.