Ágústa Edda Björnsdóttir
Fararstjóri
Ágústa hefur verið í íþróttum frá unga aldri. Hún þjálfar nú hjólahóp frá hjólreiðafélaginu Tindi og er bikarmeistari í götuhjólreiðum.
Íþróttaferillinn byjaði í fimleikum, svo handbolta og nú hjólreiðum. Ágústa hefur einnig þjálfað börn og unglinga í fimleikum og handbolta í mörg ár.
Hún var yfirþjálfari handknattleiksdeildar Vals í nokkur ár og þjálfar nú hjólahóp frá hjólreiðafélaginu Tindi (fullorðnir).
Ágústa byrjaði seint í hjólreiðum en hefur stundað þær af kappi undanfarin 2 ár.
Hún er bikarmeistari í götuhjólreiðum og varð í öðru sæti á íslandsmeistaramótinu í fjallahjólreiðum.
Ágústa hefur hjólað í 5 löndum/eyjum á árinu, Tenerife, Möltu, Frakklandi, Danmörku, Gran Canaria.
Á þessum ferðalögum sínum hefur hún uppgötvað að hjólaferðir í útlöndum eru laaangbestu frí sem hægt er að hugsa sér!!