Arna Björk - jógakennari
Fararstjóri
Arna Björk hefur ferðast sem jógakennari undanfarin 10 ár. Hún heimsótti fyrst Indland árið 2010 til að læra Ashtanga Yoga með meistara Sharath Jois í Mysore. Eftir árlegar heimsóknir hlaut hún réttindi til að kenna og er nú með alþjóðlegt viðurkennt skírteini frá KPJAYI, India.

Frá fyrsta degi á jógadýnunni hefur Arna tileinkað sér daglega iðkun. Á undanförnum árum hefur Arna verið starfandi í Danmörku, Svíþjóð, Kanada, Kýpur, Ítalíu, Grikklandi, Indlandi, Ameríku og Íslandi. Hún kennir öndun, jóga, hugleiðslu, Ayurveda og almenna lífstíls þjálfun. Með trúfestu og ástríðu sinni hefur hún tileinkað sér það verkefni að hvetja fólk til að þróa líf sitt á jákvæðan hátt með því að nota innri tæki og tól sem leiðarvísi.
Nýlega flutti hún alfarið til Krítar, þar sem hún býður upp á jóganámskeið allt árið. Vegna ferðatakmarkana af völdum Covid-19 hefur hún boðið upp á einkatíma í gegnum netið. Í sumar mun hún starfa með VITA og bjóða upp á morgunjóga og hugleiðslu. Einnig verður hægt að fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf í Ayurveda og jóga.