Ástbjörn Egilsson
Fararstjóri
Ástbjörn hefur margháttaða og fjölbreytta reynslu af atvinnu- og félagslífi og nýtur þess að starfa með glöðu fólki.
Er nýlega sestur í helgan stein eftir að hafa starfað sem kirkjuhaldari við Dómkirkjuna í Reykjavík sl. 15 ár. Starfaði áður sem prentari, matvörukaupmaður í Reykjavík og Grindavík og sem sölustjóri hjá Ísspor. Hefur mikla reynslu af félagsstarfi í Kiwanishreyfingunni og víðar og er nú formaður í Félagi eldri borgara í Garðabæ. Hefur stundað Qigong í 10 ár og leiðbeinir nú hópi eldri borgara við æfingar og eflingu heilsunnar með iðkun aldagamalla kínverska æfinga.
Fæddur í Reykjavík (Þingholtunum) og ólst þar upp. Eiginkona mín til 49 ára er Elín Sæmundsóttir og eigum við fjórar dætur, 10 barnabörn og 4 barnabarnabörn.