Astrid Helgadóttir
Fararstjóri
Astrid Helgdóttir hefur búið í Barcelona í tæplega 40 ár. Hún hefur unnið við fararstjórn víða á Spáni, meðal annars á Mallorca, Costa Brava, Barcelona, Madrid og Bilbao. Einnig hefur hún verið fararstjóri í ferðum með Íslendinga til Kúbu. Astrid hefur unnið á ræðisskrifstofu Íslands í Barcelona síðan 2006 og verið ræðismaður síðan 2019.
Hún elskar að ganga um strandstíga og uppi í fjöllum og þekkir Costa Brava út í gegn, enda eyðir hún flestum sumrum þar. Astrid hefur lengi langað til að kynna Íslendinga fyrir þessari mögnuðu náttúruperlu sem strandstígar Costa Brava eru og nú loks er sá draumur að rætast.