Brynjar Karlsson
Fararstjóri
Brynjar fæddist 1964 í Reykjavík. Hann hefur síðasta áratug dvalið stóran hluta ársins í San Sebastián í Baskalandi en bjó í sjö ár í Frakklandi þar sem að hann stundaði nám.
Brynjar ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann hefur síðasta áratug dvalið mikið í Baskalandi á Spáni og bjó áður í sjö ár í Frakklandi þar sem að hann stundaði nám. Brynjar var til skamms tíma prófessor í Tækni- og verkfræðideild HR en kennir nú eðlisfræði í læknadeild HÍ eins og hann hefur reyndar gert undanfarin 20 ár.
Brynjar er spænsku- og frönskumælandi og er áhugamaður um mat, vín og aðra menningu þessara landa. Reyndar má segja að hann sé almennt gríðarlega áhugasamur um menningar- og hreyfiferðamennsku, sem hann sinnir við hvert tækifæri, sem fararstjóri eða bara fyrir sjálfan sig.
Brynjar hefur undanfarið verið fararstjóri í hjólreiða og gönguferðum auk hefðbundinna borga og rútuferða einkum á Spáni og í Frakklandi. Hann er líka ástríðufullur skíða- og brettamaður sem hefur stundað þessar íþróttir á öllum bestu skíðasvæðum Pírennafjalla, á Ítalíu og í Austurríki.
Til gamans má geta þess að hann hefur spreytt sig á fjallaskíðamennsku á klofbretti sem að hann smíðaði sjálfur. Klofbretti (e: splitboard) er snjóbretti sem hægt er að kljúfa í sundur til að ganga upp, eins og á fjallaskíðum, en setja síðan saman til að renna sér niður.