Draupnir Rúnar Draupnisson
Fararstjóri
Draupnir Rúnar er lærður leiðsögumaður og hefur starfað sem fararstjóri víða um heim.
Draupnir hefur afar mikinn áhuga á að kynna sér ný lönd og upplifa framandi siði og venjur. Hann hefur ferðast til yfir hundrað og tuttugu landa og unnið sem fararstjóri í Grikklandi, Tyrklandi, Mexíkó, Taílandi, Grænhöfðaeyjum, Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og Madeira ásamt leiðsögn á Íslandi.
Draupnir Rúnar er fæddur og uppalinn í Neskaupstað og fór í alþjóðlegt ferðamálanám eftir stúdentspróf. Hann hefur í kjölfarið unnið hin ýmsu störf tengd ferðaþjónustu, bæði á Íslandi og erlendis.
Einnig er hann lærður leiðsögumaður og kennari og hefur lokið mastersgráðu í blaða- og fréttamennsku.
Hann hefur dvalið víða og bjó og starfaði meðal annars sex vetur í Mið-Austurlöndum, kenndi sem sjálfboðakennari í Indlandi einn vetur og var skólastjóri í Grímsey.
Ferðir:
-
Madeira
Einstök náttúrufegurð og góður matur
» Nánar
5. maí í 11 nætur - UPPSELT
16. maí í 7 nætur - ÖRFÁ SÆTI LAUS
25.sept - 3.okt í 8 næturVerð frá
174.900kr
á mann í tvíbýli með morgunverði á Vila Baleira Funchal 16.maí í 7 nætur