Einar Lyng Hjaltason
Fararstjóri
Einar hóf störf hjá golfdeild Peters Salmon árið 2000 og hefur séð um margar ferðir frá þeim tíma, meðal annars til Portúgals, Spánar, Írlands og Thailands. Einnig hefur Einar verið skíða- og sólarlandafararstjóri.
Einar keppti mikið á skíðum á sínum yngri árum en fékk golfbakteríuna árið 1996 þegar hann starfaði á vinnustað þar sem var mikill og almennur áhugi var á golfi. Einar var einn af brautryðjendum landsins í umfjöllun á golfi í útvarpi og var hann meðal annars með vikulega þætti á sumrin með Þorsteini Hallgrímssyni, ásamt því að vera einn með þætti í nokkur ár.
Einar er í golfklúbbi Bakkakots í dag en var áður í Oddi, þar sem hann meðal annars varaformaður um tíma. Einar er aðalkennari í Bakkakoti í dag. Einar hefur haft golf sem sitt aðal áhugamál í tíu ár en síðustu tvö ár hefur hann haft golfkennslu, fararstjórn og önnur störf tengd íþróttinni sem sína megin atvinnu. Einar útskrifaðist sem golfkennari vorið 2009 og er með 3 í forgjöf. Einar hóf störf hjá Peter Salmon árið 2000.