Hildur Kjærnested
Fararstjóri
Hildur Þórisdóttir Kjærnested hefur verið fararstjóri hjá VITA í nokkur ár í Madonna di Campiglio og er því mikill reynslubolti.
Hún er með atvinnuflugmannsréttindi, hefur starfað sem flugfreyja og sem ferðaráðgjafi hjá Iceland Travel.
Hildur hefur einnig skíðað á Madonna svæðinu frá unglingsaldri og gjörþekkir svæðið.
Síðastliðin 2 ár hefur Hildur stundað nám í flugakademíu Keilis og útskrifaðist með atvinnuflugmannsréttindi í ágúst 2019.
Hún hefur unnið sem flugfreyja hjá WOW air og einnig sem ferðaráðgjafi hjá Iceland Travel.
Hildur hefur mikinn áhuga á skíða- og fjallamennsku og hefur sem dæmi gengið á Kilimanjaro hæsta fjall Afríku.