Hrafnhildur og Drífa
Fararstjóri
Fararstjórar eru Hrafnhildur og Drífa hjá Jógastúdíóinu. Þær eru báðar jógakennarar og hafa mikla ástríðu fyrir jóga.
Þær leggja áherslu á heilsu, hamingju og hugarró.
Hrafnhildur Sigmarsdóttir
Hrafnhildur vinnur sem áfallaráðgjafi hjá Bjarkarhlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Hún hefur unnið sem jógakennari hjá Jógastúdíó í um 4 ár og kennt námskeiðin "Styrkur og Slökun" og "Hugarró" við góðar undirtektir. Hún leggur áherslu á streitulosun og sjálfsmildi í kennslu sinni. Hrafnhildur hefur lokið reiki 1 og stundaði hugleiðslu og sjálfsrækt hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands í nokkur ár. Hrafnhildur er með B.A í mannfræði og M.A diploma í Jákvæðri sálfræði.
Drífa Atladóttir
Drífa rekur Jógastúdíó og hefur gert síðan árið 2010. Hún er uppeldis- og menntunarfræðingur að mennt með master í lýðheilsufræðum en lauk jógakennaranámi hjá Guðjónu Bergman árið 2007 og hefur kennt jóga síðan. Hún hefur mikla ástríðu fyrir jóga og jógaheimspeki og hefur kennt fjölmörg jóganámskeið og opna jógatíma um árabil. Árið 2012 útskrifaði hún sinn fyrsta jógakennarahóp og hefur gert á hverju ári síðan. Sem jógakennari og einstaklingur finnur hún hvað það er nauðsynlegt að huga vel að eigin heilsu, bæði líkemlegri og andlegri.