Jörundur Kristjánsson
Fararstjóri
Jörundur hefur starfað sem fararstjóri á ýmsum stöðum, m.a. í Portúgal, á Spáni, í Tyrklandi, Edinborg, Mexíkó og Madrid.
Jörundur er menntaður viðskipta- og ferðamálafræðingur, með framhaldsgráðu í Evrópurétti og viðskiptafræði, auk þess að vera menntaður framhaldsskólakennari, með gráðu í stjórnsýslufræðum.
Hann hefur kennt ferðamálafræði á framhaldsskólastigi og unnið sem verkefnastjóri við opinber innkaup, en undanfarin ár hefur hann unnið að alþjóðamálum. Jörundur er kvæntur og á eina dóttur.