Karen Sævarsdóttir
Fararstjóri
Karen Sævarsdóttir er fædd 1973. Hún hefur leikið golf í yfir 30 ár og á þeim tíma ferðast víða og leikið mikið bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Hún er LPGA golfkennari og íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja, með ára langa reynslu af kennslu og þjálfun.
Karen hefur spilað golf frá því hún var 5 ára gömul, fyrstu kynni af golfi erlendis var þegar hún keppti ung eða 11 ára í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd á Ítalíu. Eftir það voru verkefni í golfinu mörg erlendis og seinna tók við Háskólagolf. Karen er áttfaldur íslandsmeistar kvenna í golfi, hefur reynt fyrir sér í atvinnumennsku, þjálfað háskólagolf og starfar í dag sem Íþróttastjóri Golfklúbbs suðurnesja. Karen er LPGA golfkennari og hefur einnig lokið grunnnámskeiði í golffitness og er einkaþjálfari frá WorldClass og markþjálfi síðan 2015 frá HR.
Eftir að hafa reynt við atvinnumennsku í golfi tók Karen smá pásu frá golfi, bæti MBA námi við annars markaðsfræði nám sem hún kláraði með háskólagolfi og starfaði um 7 ár sem útibústjóri í Bandaríkjunum hjá Woodforest National Bank.
Karen kom heim til Íslands árið 2008 og hefur síðan starfað sem golfkennari og einnig unnið önnur störf með.
Tölvupóstur: [email protected]