Kristín Arna Bragadóttir
Fararstjóri
Kristín Arna hefur starfað sem fararstjóri á Spáni í mörg ár. Hún hefur einnig unnið sem fararstjóri á Íslandi og kennt spænsku.
Kristín Arna hefur unnið á Alicante, Almería, Tenerife, Gran Canaria og Valencia.
Spænska tungumálið og menning spænskumælandi heimsins heilluðu hana unga og 18 ára gömul dvaldi hún sem skiptinemi í Mið-Ameríkuríkinu Guatemala og nam meðal annars spænsku.
Kristín Arna hefur kennt spænsku í framhaldsskóla Suðurlands og einnig verið með námskeið fyrir fullorðna í tungumálaskólanum Lingva og hjá Fræðsluneti Suðurlands. Hún var flugfreyja hjá Air Atlanta og fékk þar tækifæri til að ferðast til Afríku og Asíu ásamt því að vera búsett í Dublin á Írlandi og fljúga þaðan til suður Evrópu. Hún hefur líka unnið hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum þannig að Kristín hefur verið viðriðin ferðamannageirann í um 15 ár.