Kristín Einarsdóttir
Fararstjóri
Kristín Einarsdóttir hefur yfir tíu ára reynslu af fararstjórn erlendis og hefur farið með hópa hjólagarpa um Skotland, Austurríki, Frakkland og Ítalíu, auk ótal ferða með hópa um hálendi Íslands. Kristín leggur mikla áherslu á að hjólafólk njóti ferðarinnar, kynnist landi og þjóð og komi heim endurnært á líkama og sál. Í ferðum Kristínar er lögð áhersla á að njóta augnabliksins og samveru hópsins.