Soffía Alice Sigurðardóttir
Fararstjóri
Soffía Alice Sigurðardóttir hefur starfað við leiðsögn á Íslandi í yfir 25 ár. Hún hefur ferðast víða um heim og notað nám sitt í listum og trúarbrögðum við leiðsögn.
Soffía lærði myndlist við Rockford College í Illinois. Hún kom eftir það til Íslands ásamt fjölskyldu sinni. Árið 2008 lauk hún B.A. prófi í guðfræði við Háskóla Íslands.
Soffía starfar aðallega sem leiðsögumaður á Íslandi en af og til tekur hún að sér ferðir til staða sem hafa heillað hana. Soffía hefur ferðast víða um heim og eru henni þá sérstaklega minnisstæðar ferðir til Feneyja, Bali, Rómar og Lissabon.
Í ferðalögum, sem og við vinnu við leiðsögn, hefur hún getað notfært sér það nám sem hún hefur stundað í listum og trúarbrögðum.