Sr. Þórhallur Heimisson
Fararstjóri
Sr. Þórhallur Heimisson hefur unnið sem fararstjóri í allnokkrum ferðum VITA. Hann er prestur, trúarbragðafræðingur, sagnfræðingur og rithöfundur og hefur sérhæft sig í sögu Grikkja, Rómverja, Aust-Rómverska ríkisins, krossferðanna og Tyrkjaveldis.
Þórhallur hefur fjallað um hina merku borg Róm í bókum, á námskeiðum og í útvarpsþáttum. Hann þekkir því menningu og sögu Rómarborg vel ásamt því að hafa ferðast vítt og breytt um Eyjahaf. Þórhallur hefur þrætt fornar slóðir Istanbúl og heimsótt Efesus, Troju og margar aðrar fornar rústaborgir Tyrklands og Grikklands.
Hann hefur auk þess skrifað mikið um sögu Síðari heimsstyrjaldarinnar, Sovétríkjanna og Kákasuslandanna. Þórhallur er sérfróður um þróun trúarbragða og menningar á þessu svæði öllu.
Einnig skrifaði hann um sögu Suður-Ameríku í tveimur af bókum sínum. Þær heita ,,Hin mörgu andlit trúarbragðanna 2005" og ,,Hin mörgu andlit kristninnar 2012". Hann var svo með þáttaröð um sögu Suður og Mið -Ameríku á Rúv.